Nýjast á Local Suðurnes

Gerðu sér glaðan dag í Bláa lóninu

Stefnt er að því að opna Bláa lónið, Silica hótels og Retreat hótels klukkan sjö að morgni fimmtudaginn 14. desember næstkomandi. Þetta kemur fram á heimasíðu fyrirtækisins, en þar segir þó að staðan verði endurmetin þá.

Starfsfólk lónsins hefur hafið undirbúning fyrir opnunina, meðal annars með því að skella sér í lónið, eins og sjá má á myndinni hér að ofan sem ljósmyndari Vísis tók á dögunum. Það kom ljósmyndaranum á óvart að sjá fólk í lóninu, en miðillinn fékk staðfest að um væri að ræða starfsfólk.

Mynd: Skjáskot / Vísir.is