Nýjast á Local Suðurnes

Ekki óhætt að flytja til Grindavíkur – Nætureftirlit af skornum skammti

Veður­stofa Íslands treyst­ir sér ekki til þess að sjá um ásætt­an­legt eft­ir­lit á svæðinu í og við Grindavíkað næt­ur­lagi, eins og staðan er nú og því er ekki talið óhætt fyr­ir Grind­vík­inga að flytja aft­ur í bæinn fyrir áramót hið minnsta.

Þetta kom fram á íbúafundi fyrir Grindvíkinga sem haldinn var fyrr í kvöld, en þar kom einnig fram að til að halda úti ásætt­an­legu eft­ir­liti, og þar með tryggja ör­yggi Grind­vík­inga í bæn­um, þyrfti meðal annars að fá næg­an mann­skap í verkið og viðeig­andi tækja­búnað, þar sem fyr­ir­vari eld­goss gæti orðið afar lít­ill.