Nýjast á Local Suðurnes

Hlutfallslega fjölgar íbúum mest í Vogum

Hlutfallslega hefur fjölgun íbúa á árinu verið mest á Suðurnesjum eða um 5,3% sem er fjölgun um 1.651 íbúa. Samtals fjölgar íbúum á landinu öllu um 11.465 frá 1. desember 2022 til. 1. desember 2023 sem er um 3%. Mesta fjölgunin, hlutfallslega er í Vogum.

Þegar horft er til hlutfallslegrar breytingar á íbúafjölda þá hefur íbúum í Sveitarfélagsinu Vogaum fjölgað hlutfallslega mest frá 1. desember 2022 um 12,3%, en íbúum þar fjölgaði um 172 íbúa, samkvæmt tölum Þjóðskrár, sem birtar voru í morgun. Í Reykjanesbæ hefur fjölgað um 1.293 íbúa á árinu.

Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við íbúatölur frá 1. desember fyrir árin 2019-2022.

Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi.