United Airlines flýgur til Íslands
![united airl](https://i0.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2017/09/united-airl.jpg?resize=620%2C264)
Bandaríska flugfélagið United Airlines mun hefja flug til Íslands sumarið 2018, en flogið verður frá Newark flugvelli í New York.
Í frétt á heimasíðu flugfélagsins kemur fram að félagið muni hefja flug til Íslands þann 23. maí næstkomandi og notast við Boeing 757. Með flugi hingað ti lands skapast miklir möguleikar í tengiflugi, segir í fréttinni, en flugfélagið flýgur til 150 áfangastaða víðs vegar um heim frá New York.