Kyndlaganga þar sem brennusvæði uppfylla ekki kröfur

Engin áramótabrenna verður í Suðurnesjabæ þetta árið þar sem brennusvæðin sem notuð hafa verið undanfarin ár í Sandgerðishverfi uppfylla ekki kröfur þar um.
Annað svæðið sem notað hefur verið er mjög nærri mannvirkjum og matvælaframleiðslu ásamt því að vera geymslusvæði fyrir efni í sjóvarnir og á hinu svæðinu er mikil nálægð við nýja íbúðarbyggð, segir í tilkynningu, en þar segir jafnframt að eftir ítarlega skoðun hafi verið ljóst að ekki væri hægt að vera með brennu í þéttbýlinu í Sandgerði nálægt þeim stað sem flugeldasýningin verður eða við höfnina í Sandgerði.
Í stað þess að vera með áramótabrennu verður boðið upp á að mynda kyndlaröð við Sjávargötu á móti flugeldasýningunni. Kyndlar verða í boði Suðurnesjabæjar og verða afhentir á Sjávargötu til móts við smábátahöfnina þegar að flugeldasýningin fer fram klukkan 20.00 á gamlárskvöld í Sandgerði.
Veðuraðstæður verða vonandi hagstæðar fyrir þennan skemmtilega viðburð og eru íbúar hvattir til að taka þátt og tendra saman á kyndlum á meðan flugeldasýning fer fram. Kyndlar verða afhentir 18 ára og eldri við Sjávargötuna í Sandgerði frá klukkan 19:45 á gamlárskvöld.
Á nýju ári mun ferða,- safna- og menningarráð taka til skoðunar framtíðarfyrirkomulag á áramótabrennum í Suðurnesjabæ, segir í tilkynningunni.
Hér fyrir neðan má sjá gönguleiðina:
