Nýjast á Local Suðurnes

Hælisleitendur greiddu fimm milljónir króna fyrir aðstoð við að komast til Íslands

Lögreglumenn í flugstöðvardeild lögreglunnar á Suðurnesjum höfðu í vikunni afskipti af fimm manna fjölskyldu sem var að koma til landsins og kvaðst vera skilríkjalaus. Það reyndist ekki alls kostar rétt því á salerni í tollsal fann tollvörður rifin og blaut skilríki sem fólkið viðurkenndi þá að hafa hent. Fjölskyldan tjáði svo lögreglumanni að fjölskyldumeðlimir hefðu keypt fölsuð vegabréf og aðstoð til að komast til Íslands á samtals rúmlega fimm milljónir króna. Fjölskyldan sótti um hæli við komuna til landsins.

Auk þessa þurfti að lenda flugvél frá Turkish Airlines á Keflavíkurflugvelli í vikunni vegna veikinda farþega um borð. Viðkomandi var fluttur til aðhlynningar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.