Nýjast á Local Suðurnes

Aftur gult í kortunum – Búast má við töluverðum vindi

Veðurstofan hefur gefið út gula veðurviðvörun fyrir Suðurland, þar með talið Suðurnesin. Búast má við töluvert miklum vindi frá miðnætti.

Gert er ráð fyrir austan 18-23 m/s, en upp í 28 syðst. Búast má við snörpum vindhviðum við fjöll sem geta verið varhugaverðar fyrir vegfarendur, sérstaklega ökutæki sem taka á sig mikinn vind, segir á vef Veðurstofunnar.