Heilbrigðisráðherra mætir á opinn fund um stöðu heilbrigðismála á Suðurnesjum
Svandís Svavarsdóttir, Heilbrigðisráðherra, mun mæta á opinn fund sem Öldungaráð Suðurnesja stendur fyrir um stöðu heilbrigðismála á Suðurnesjum í Bíósal DUUS húsa í Reykjanesbæ föstudaginn 6. apríl næstkomandi kl 14:00 til 15:30.
Dagskrá:
- Fundur settur Eyjólfur Eysteinsson, formaður Öldungaráðs Suðurnesja.
- Skipan fundarstjóra. Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar.
- Svandís Svavarsdóttir Heilbrigðisráðherra.
- Stutt ávörp.
- Nauðsyn uppbyggingar hjúkrunarheimilis á Suðurnesjum, Sigurður Jónsson ritari Öldungaráðs.
- Staðan á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, Guðný Birna Guðmundsdóttir bæjarfulltrúi Reykjanesbæ og í stjórn Öldungaráðs.
- Þjónusta HSS við íbúa í Garði,Sandgerði og Vogum, Magnús S.Magnússon,bæjarfulltrúi í Sandgerði og í stjórn Öldungaráðs.
- Samþætting heimahjúkrunar og félagslegrar þjónustu, Jórunn A.Guðmundsdóttir, í stjórn Öldungaráðs.
- Fyrirspurnir og umræður.
- Tillaga um ályktun frá fundinum. Eyjólfur Eysteinsson,formaður Öldungaráðs.
Kaffiveitingar á fundinum eru í boði Reykjanesbæjar.