Nýjast á Local Suðurnes

Fundu kannabis í skúrum

Tvö kannabismál komu á borð lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni.  Í bílskúr, þar sem farið var í húsleit að fenginni heimild, fundust kannabisefni undir dýnu. Jafnframt mikið magn af smelluláspokum, vog og önnur tól til fíkniefnanotkunnar.

Í öðrum bílskúr var húsráðandi fyrir og framvísaði hann krukku með kannabisefnum sem geymd var í skúrnum.