Nýjast á Local Suðurnes

Lést eftir vinnuslys í Reykjanesbæ

Maður­ sem varð fyr­ir slysi við vinnu sína í Plast­gerð Suður­nesja í dag hef­ur verið úr­sk­urðaður lát­inn. Þetta staðfest­ir lög­regl­an á Suður­nesj­um í sam­tali við mbl.is.

Sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá lög­reglu var maður­inn að hreinsa vél sem steyp­ir frauðplast­kassa þegar hún fór skyndi­lega af stað og varð hann und­ir einu af mót­un­um. Hann þurfti önd­un­araðstoð þegar sjúkra­liðar komu á vett­vang og lést af áverk­um sín­um á slysa­deild.

Fram kemur á vef mbl.is að ætt­ingj­ar manns­ins hafi verið látn­ir vita, en maður­inn var á fer­tugs­aldri og pólsk­ur að upp­runa.