Nýjast á Local Suðurnes

Áhersla lögð á fjölskylduvænt samfélag við gerð fjáhagsáætlunar í Sandgerði

Á fundi bæjarstjórnar Sandgerðisbæjar sem haldinn var þann 2. desember var afgreidd fjárhagsáætlun til næstu fjögurra ára. Við gerðu áæltunarinnar var áhersla lögð á fjölskylduvænt samfélag, góða þjónustu og ábyrgan rekstureftirfarandi og við afgreiðsluna var lögð fram eftirfarandi bókun:

„Fjárhagsáætlun Sandgerðisbæjar fyrir tímabilið 2016-2019 er unnin með hliðsjón af 10 ára langtímaáælun 2012 til 2022. Fjárhagsáætlunin stenst ákvæði sveitarstjórnarlaga um rekstrarjöfnuð og skuldaviðmið en áætlað er að þessi viðmið náist á árinu 2019.

Eins og undanfarin ár hefur ríkt góð samstaða innan bæjarstjórnar við vinnslu fjárhagsáætlunar og þau markmið sem sett hafa verið. Áætlunin ber þess merki að mikil áhersla er lögð á að stuðla að fjölskylduvænu samfélagi, má í því sambandi nefna að í fyrsta sinn munu námsgögn verða foreldrum nemenda grunnskólans að kostnaðarlausu, áfram verður veittur hvatastyrkur að fjárhæð 30 þúsund kr. á barn á á aldrinum 4 til 18 ára aldurs til íþrótta- og frístundastarfs, þá verður að nýju tekin upp kennsla á móðurmáli barna af erlendum uppruna. Niðurgreiðsla til dagforeldra hækkar í 40 þúsund kr. á mánuði miðað við fulla vistun.

Gert er ráð fyrir að rekstrartekjur Sandgerðisbæjar á árinu 2016 nemi 1.763 mkr. en rekstrarútgjöld nemi 1.622 mkr. án fjármagnsliða. Með fjármagnsliðum er rekstrarniðurstaðan neikvæð um tæpar 75 mkr.

Stærsti útgjaldaliðurinn í rekstri Sandgerðisbæjar er fræðslu- og uppeldismál en í þann málaflokk fer um 48% af tekjum sveitarfélagsins, næst á eftir eru æskulýðs- og íþróttamál með 12% útgjaldanna og 9% til félagsþjónustu.

Gert er ráð fyrir að varið verði 54 mkr. í fjárfestingar og framkvæmdir og tæpum 50 mkr. til viðhaldsframkvæmda.

Gjaldskrár taka breytingum í takt við vísitölu neysluverðs og launa og hækka að jafnaði um 4,5%.

Verðbólga og breytingar á kjarasamningum eru óvissuþættir sem geta haft áhrif á fjárhagsáætlunina en útgjöld vegna launa eru 44% af heildartekjum.

Lögð er rík áhersla á gegnsæi og aðhald í rekstri bæjarfélagsins og áfram munu langtímamarkmið um bættan rekstur og lækkun skulda höfð að leiðarljósi.”