Nýjast á Local Suðurnes

Kalla út auka mannskap vegna öflugs skjálfta

Jarðskjálfti sem reið yfir nú fyrir nokkrum mínútum er af þeirri stærðargráðu að kalla þarf út auka mannskap hjá Veðurstofu Íslands til þess að meta stöðuna.

Jarðskjálftinn var 5.1 að stærð en vefur Veðurstofunnar liggur nú niðri vegna álags.

Jarðfræðingur á Veðurstofu Íslands segir við RÚV að frekari upplýsinga sé að vænta þegar sérfræðingar hafa metið stöðuna.