Nýjast á Local Suðurnes

Árekstrar og föst ökutæki víðsvegar á Suðurnesjum

Töluvert hefur verið um umferðaróhöpp í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í dag, en skyggni hefur verið afar slæmt á köflum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. Þá er töluvert um að ökutæki séu föst víðsvegar um svæðið.

Tilkynning lögreglu:

Til upplýsinga þá eru ökutæki föst víðsvegar um svæðið bæði innan og utanbæjar. Eitthvað er um umferðaróhöpp vegna slæms skyggnis og við ítrekum beiðni um að fók haldi sig heima nema nauðsyn sé rétt á meðan þessi hvellur gengur yfir. Vegurinn á milli Garðs og Sandgerðis er verulega slæmur á köflum og ekkert skyggni.
Við getum ekki svarað fyrir hvað þetta stendur lengi yfir og hvetjum fók til að fylgjast með veðurspá og vef Vegagerðarinnar.