Nýjast á Local Suðurnes

Rúmlega 1300 krakkar tóku þátt í Njarðvíkurmótaröðinni í fótbolta

Njarðvíkurmótaröðin í 6. flokki í knattspyrnu hefur farið fram undanfarnar helgar í Reykjaneshöllinni. Rúmlega 400 strákar frá 12 félögum léku með 68 liðum í sex deildum um síðustu helgi, en í fjórum mótum mótaraðarinnar hafa alls 1300 ungir knattspyrnumenn leikið og óhætt að segja að rúmlega 2000 ættingjar þeirra fylgt þeim og fylgst með.

Barna og unglingaráð Knattspyrnudeildar Njarðvíkur vill þakka öllum keppendum og þjálfurum þeirra fyrir skemmtilega keppni, foreldrum og forráðamönnum keppenda fyrir komuna á mótin. Einnig þökkum við öllum þeim foreldrum iðkenda hjá okkur og þeim sem tóku að sér dómgæsluu fyrir framlag þeirra á mótunum. Segir í tilkynningu frá knattspyrnudeild Njarðvíkur.

Hér má sjá nokkrar skemmtilegar myndir frá mótinu.