Nýjast á Local Suðurnes

Ungmennaráð fær fulltrúa í nefndir og ráð Reykjanesbæjar

Ljósmynd: Reykjanesbær.is / OZZO

Bæjarstjórn Reykjanesbæjar samþykkti á fundi sínum í dag að bjóða ungmennaráði Reykjanesbæjar að tilnefna áheyrnarfulltrúa með málfrelsi og tillögurétt á fundi nefnda og ráða sveitarfélagsins; annarra en barnaverndarnefndar.

Um tilraun verði að ræða sem hefjist nú þegar og standi til loka yfirstandandi kjörtímabils. Framhaldið verið ákveðið af nýrri bæjarstjórn, sem tekur við eftir sveitarstjórnarkosningar í vor, í samráði við ungmennaráð þ.m.t. hvort greiða skuli fyrir nefndarsetuna. Verði það niðurstaðan þarf að uppfæra erindisbréf nefnda og ráða.

Greinargerð

Ungmennaráð Reykjanesbæjar hefur nú um margra ára skeið fundað tvisvar á ári með bæjarstjórn; á vorin og haustin. Síðasti fundur ungmennaráðs og bæjarstjórnar fór fram þ. 16. nóv. sl. Á þeim fundi fluttu 9 ungmenni kjarnmiklar, áhugaverðar og vel undirbúnar ræður um ýmis mál. Í kjölfarið átti undirritaður óformlegan fund með ungmennaráði mánudaginn 29. nóv. sl. þar sem gafst tækifæri til að ræða málin frekar. Á þeim fundi kom fram áhugi ungmennaráðs á að fá tækifæri til að kynnast viðfangsefnum sveitarfélagsins betur og leggja sín lóð á vogarskálarnar með þessum hætti. Það er í samræmi við áherslu um aukið notendasamráð sem m.a. má finna í lögum um félagsþjónustu, og málefni fatlaðra en einnig í samræmi við 12. og 13. greinar Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, sem nú er verið að innleiða í stjórnsýslu Reykjanesbæjar. Í þessu samhengi má einnig nefna þingsályktunartillögu Ásmundar Einars Daðasonar um stefnu um Barnvænt Ísland, markvissa innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, sem samþykkt var á Alþingi 10. júní sl. Með stefnunni verður innleitt verklag og ferlar sem tryggja jafnræði og markvissa þátttöku barna og ungmenna innan stjórnsýslunnar, samstarf milli opinberra aðila með velferð barna að leiðarljósi aukið, ásamt því að tryggja markvisst verklag við hagsmunamat út frá réttindum barna og velferð barna, auk heildstæðrar framkvæmdar réttinda barna.

Mikilvægt er að ungmennaráði Reykjanesbæjar verði boðið að tilnefna áheyrnafulltrúa á fundi nefnda og ráða sveitarfélagsins í ljósi þess hlutverks sem ungmennaráðsmeðlimir gegna. Í handbók ungmennaráða sveitarfélaganna eru listuð upp helstu hlutverk ungmennaráðsmeðlima og eru þau eftirfarandi:

• Vera fulltrúi og málsvari ungmenna í sveitarfélaginu.
• Stuðla að virkri þátttöku ungs fólks í sveitarfélaginu.
• Vera ráðgefandi fyrir sveitarfélagið um verkefni og málefni þess.
• Sitja í nefndum sveitarfélaganna sem fulltrúi ungmenna.
• Sækja markvisst skoðanir annarra ungmenna.
• Gefa ungmennum vettvang til að koma skoðunum sínum á framfæri.
• Vekja athygli á ungmennaráðinu og kynna það fyrir fólki í samfélaginu.
• Halda viðburði sem kemur ungu fólki saman.

Í þessu samhengi ná nefna að ungmennaráðsmeðlimir eru fulltrúar og málsvarar fyrir gríðarlega stóran hóp íbúa sveitarfélagsins, segir í fundargerð bæjarstjórnar. Þar kemur einnig fram að allir bæjarfulltrúar hafi samþykkt tillöguna sem lögð var fram af bæjarstjóra, Kjartani Má Kjartanssyni.