Nýjast á Local Suðurnes

Ósamvinnuþýður vildi slást við lögreglu

Tveir ökumenn voru staðnir að ölvunarakstri í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina. Annar þeirra brást illa við þegar lögregla hafði afskipti af honum. Hrækti hann og sparkaði í öxl lögreglumannsins er ók lögreglubifreið með manninn innanborðs á lögreglustöð. Á lögreglustöð vildi hann slást við lögreglu og var mjög ósamvinnuþýður. Þar kom í ljós að hann var, auk annarra brota, sviptur ökuréttindum.

Hinn ökumaðurinn viðurkenndi á vettvangi að hann væri sviptur ökuréttindum. Hann var handtekinn og færður á lögreglustöð.