Nýjast á Local Suðurnes

Íþróttasvæðin í Vogum munu bera nafn Vogabæjar næstu tvö árin

Nýtt knattspyrnusvæði Vogabúa og Íþróttamiðstöð Voga munu heita Vogabæjarvöllur og Vogabæjarhöllin næstu tvö árin, Vogabær og Þróttur skrifuðu undir samning þess efnir á dögunum.

Líkt og síðustu ár hefur Vogabær verið einn af samstarfsaðilium félagsins. Vogabær hefur lagt ríka áherslu á að vera í góðum tengslum við íþróttahreyfinguna í Vogum. Með samningi þessum vill Vogabær sýna í verki áhuga sinn og stuðning við æskulýðs- og íþróttamál og um leið leggja áherslu á forvarnarþátt þess starfs, segir í tilkynningu.

Fyrir barna- og unglingastarfið hjá Þrótti er þessi samningur mikil lyftistöng samkvæmt Gunnari Helgasyni formanni Þróttar. Leifur Grímsson sagði við þetta sama tilefni að það væri mikill heiður fyrir Vogabæ ehf. að fá að taka þátt í þessu uppbyggingarstarfi með Þrótturum og lýsti því einnig yfir hve ánægður hann væri með kraftinn í félaginu.

Vogabær ehf. er matvælafyrirtæki sem framleiðir sósur og ídýfur fyrir matvörumarkaði og skyndibitastaði. Fyrirtækið var upphaflega stofnað í Vogum sem verslun árið 1976 en árið 1985 hófst framleiðsla á ídýfum og sósum undir nafninu Vogabær.