Nýjast á Local Suðurnes

Foreldrar fá afslátt af leikskólagjöldum og starfsfólk lengra frí

Grindavíkurbær hefur ákveðið að bjóða foreldrum leikskólabarna afslátt af leikskólagjöldum í desember og starfsfólki lengra jólafrí. Er þetta liður í því að bæta starfsumhverfi leikskólanna.

Ljóst er að margir foreldrar kjósa að nýta ekki dagana milli jóla og nýárs í vistun en eru þegar að borga fyrir þá. Ákveðið hefur verið að bjóða upp á að fella niður gjaldið hjá þeim sem ekki þurfa að nýta þessa daga, segir í frétt á vef sveitarfélagsins.

Dagana milli hátíðanna verður því lágmarks starfssemi í gangi í leikskólum Grindavíkurbæjar. Einhverjum deildum verður lokað og það verður færra starfsfólk í húsi því vilji bæjarins er að gefa starfsfólki leikskólanna tækifæri til að eiga lengra jólafrí.