Fínt veður um allt land um helgina

Besta veðrið um verslunarmannahelgina, mestu ferðahelgi ársins, verður á sunnudag og mánudag og munu hitatölur norðan heiða ná tveggja stafa tölu, en hitinn mun samkvæmt spánni rétt ná í 10 gráður fyrir norðan. Þetta má sjá ef rýnt er í spákort Veðurstofu Íslands.
Besta veðrið eða í það minnsta mesti hitinn mun vera á sunnanverðu landinu en samkvæmt spá veðurstofunnar verður hitinn á bilinu 12-15 stig sunnan heiða og sólríkt.
Það stefnir í að helgarveðrið verði því fínt í Vestmannaeyjum fyrir þá sem kjósa að kíkja á þjóðhátíð. Veðrið verður sömuleiðis fínt á Ísafirði en þar fer mýrarboltinn vinsæli fram um helgina, samkvæmt spánni mun aðeins rigna á á vestfjörðum fyrri part helgarinnar en það ætti að henta fínt fyrir þá sem ætla sér að taka þátt í mýrarboltanum.