Nýjast á Local Suðurnes

Bjóðast til að kaupa íbúðarhúsnæði í Grindavík

Ríkissjóður mun bjóðast til að kaupa íbúðarhúsnæði í eigu einstaklinga í Grindavík og taka yfir þau íbúðalán sem á því hvíla.

Frumvarp þess efnis var samþykkt á ríkisstjórnarfundi í dag og hefur verið birt í Samráðsgátt. Þetta segir í fréttatilkynningu á vef Stjórnarráðsins.

Umfang aðgerðarinnar er metið á allt að 61 milljarð króna.