Nýjast á Local Suðurnes

Réttindalausir ökumenn stöðvaðir – Einn hafði aldrei öðlast réttindi

Fjórir ökumenn sem allir reyndust vera réttindalausir voru stöðvaðir í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina. Þar af var einn á þrítugsaldri sem aldrei hafði öðlast slík réttindi.

Þá voru tveir til viðbótar jafnframt grunaðir um að aka undir áhrifum fíkniefna og sá fjórði ók sviptur réttindum, segir í tilkynningu frá lögreglu.