Nýjast á Local Suðurnes

Viðbúnaður vegna tundurdufls í Grindavík

Lögreglan á Suðurnesjum lokaði hluta Grindavíkurhafnar síðastliðinn föstudag þegar Skinney SF 29 lagðist þar að bryggju með tundurdufl innan borðs. Starfsmenn Landhelgisgæslunnar fóru um borð.

Áhöfn skipsins yfirgaf það meðan starfsmenn Gæslunnar fjarlægðu sprengikúluna. Ekki var vitað hvort hún væri virk, en Skinney hafði fengið hana í trollið djúpt suður af Eldey þar sem skipið var á humarveiðum.