Nýjast á Local Suðurnes

Oddný leiðir lista Samfylkingar í Suðurkjördæmi

Oddný G. Harðardóttir mun leiða lista Samfylkingarinnar  í Suðurkjördæmi í komandi alþingiskosningum. Samfylkingin í Suðurkjördæmi hélt fjölmennan kjördæmisfund í Reykjanesbæ í gærkvöldi þar sem framboðslisti var kynntur og samþykktur samhljóða.

Njörður Sigurðsson sagnfræðingur og bæjarfulltrúi í Hveragerði skipar annað sætið á listanum, Arna Ír Gunnarsdóttir félagsráðgjafi og bæjarfulltrúi í Árborg er í þriðja sæti, fjórða sætið skipar Marinó Örn Ólafsson háskólanemi frá Reykjanesbæ.