Lögregla leitar skemmdarvarga – Sex bílar skemmdir um helgina
![bilar](https://i2.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2015/09/parking-825371_1280.jpg?resize=620%2C264)
Sex bifreiðir í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum hafa orðið fyrir barðinu á skemmdarvörgum á undanförnum dögum. Síðastliðið föstudagskvöld var tilkynnt um þrjár skemmdar bifreiðir og aðrar þrjár um helgina.
Rúður voru brotnar í þeim öllum og margt þykir benda til þess að grjóthnullungar hafi verið notaðir í þeim tilgangi. Lögregla rannsakar málið og leikur grunur á að þarna hafi sami aðili eða aðilar verið að verkum í öllum tilvikum.
Eru þeir sem hafa orðið varir við umrædd skemmdarverk á bifreiðum sem staðsettar voru við Bolafót nr. 11 og 15 í Njarðvík undir og um helgina að hafa samband í síma 444-2200.