Nýjast á Local Suðurnes

LaugardagsLjósanótt heppnaðist vel – Myndir!

Dagskrá laugardagsins á Ljósanótt fór að mestu fram samkvæmt áætlun, eftir tilfærslur á föstudag vegna veðurs, en skipuleggjendur hátíðarinnar héldu þó áfram að hugsa í lausnum og barnadagskrá sem fyrirhuguð var utandyra var flutt til svo yngsta kynslóðin gæti sem best notið hennar. Þannig mættu hin geysivinsælu Lára og Ljónsi húsfylli barna í Stapa á laugardagsmorgni og hoppukastalar sem ekki taldist öruggt að hafa uppblásna úti voru vel nýttir innandyra í Reykjaneshöll.

Þúsundir voru svo saman komnar á stórtónleikum Ljósanætur í gærkvöldi þar sem veðurguðirnir voru búnir að hrista úr sér mestu skapvonskuna og sýndu á sér sparihliðina. Stemningin á svæðinu var gríðarlega góð enda boðið upp á frábæra tónleika sem einnig var útvarpað á Rás 2. Ljósin á Berginu, sem hátíðin dregur nafn sitt af, kviknuðu við mikil fagnaðarlæti í lok magnaðrar flugeldasýningar, og munu þau lýsa upp myrkasta skammdegið í vetur og minna á sköpunargleðina og kraftinn í samfélaginu sem kristallast svo vel á Ljósanótt.

Dagskrá Ljósanætur heldur áfram í dag með sýningum, leiðsögnum í listasafni og byggðasafni og ýmsum tónleikum. Meðal annars fer fram hátíð í Höfnum, sem er eitt hverfa Reykjanesbæjar, og því nóg um að vera fyrir á fjórða og síðasta degi Ljósanætur sem var um margt óvenjuleg í ár og sýndi í raun hvaða sess hátíðin skipar í hjörtum íbúa sem neituðu að láta í minnipokann fyrir náttúruöflunum og héldu sína Ljósanótt með stæl.

Myndir: Reykjanesbær.