Nýjast á Local Suðurnes

Tekinn með metamfetamín – Lét ófriðlega við afskipti tollvarða

Karlmaður á fertugsaldri hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir að tæp 300 grömm af metamfetamíni og 1600 stykki af lyfseðilsskyldum lyfjum í fórum sínum við komuna til landsins fyrr í mánuðinum.

Maðurinn var stöðvaður í tollinum og lét hann ófriðlega við afskipti tollvarða og lögreglu. Pakkning af metamfetamíni fannst vafin föst við maga mannsins sem var úrskurðaður í gæsluvarðhald að skýrslutöku lokinni.

Rannsókn málsins snýst nú að brotum á lögum um ávana- og fíkniefni, brot á lyfjalögum og peningaþvætti.

Maðurinn hefur áður komið til sögu hjá lögreglunni á Suðurnesjum. Þá fundust fíkniefni við húsleit hjá honum, auk vopna, kylfu og rafbyssu. Þá fann lögregla einnig tvær milljónir króna í íslenskri og erlendri mynt sem talin er vera ágóði af fíkniefnasölu. Einnig fundust níu lítrar af landa á heimili mannsins.