Nýjast á Local Suðurnes

Pólverjar una hag sínum vel á Suðurnesjum

Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri og  Jacek Czaputowicz utanríkisráðherra Póllands hittust í Víkingaheimum á laugardag og ræddu málin. Ráðherrann, sem er kunnugur fjölda Pólverja á Suðurnesjum, sagði þá una hag sínum vel hér.

Utanríkisráðherra Póllands var í opinberri heimsókn á Íslandi á föstudag og laugardag. Hann kom við í Víkingaheimum á leið heim á laugardag enda mjög áhugasamur um sögu Víkinga. Ásamt því að hitta bæjarstjóra Reykjanesbæjar fékk Jacek skoðunarferð um Víkingaheima í fylgd pólskumælandi starfsmanns safnsins.

Í samtali Kjartan Más og Jacek kom fram að það væri ósk stjórnvalda í Póllandi að pólsk börn og ungmenni, hvar sem þau væru niðurkomin í heiminum, ættu kost á góðri kennslu í móðurmálinu pólsku samhliða námi í tungumáli þess lands sem þau væru búsett í.