Nýjast á Local Suðurnes

Delta bætir í – Á fjórða tug fluga í viku hverri

Bandaríska flugfélagið Delta mun bæta við ferðamöguleika hingað til lands, en félagið hefur hafið sölu á beinu flugi frá Detroit til Íslands.

Fyrsta flug mun lenda á Keflavíkurflugvelli þann 15. maí næstkomandi og verður flogið fjórum sinnum í viku.

Umsvif Delta verða því töluvertð, en samkvæmt vef Túrista mun félagið fljúga hingað til lands 36 sinnum í viku hverri næsta sumar. Í þessum ferðum verða samtals sæti fyrir 6.248 farþega samkvæmt talsmanni Delta vestanhafs, segir á vef Túrista.

Mynd: Delta News hub