Nýjast á Local Suðurnes

Geggjaður fiskréttur á grillið fyrir Sumardaginn fyrsta

Sumarið er á næsta leyti og því ber að fagna, góð leið til þess er að gera vel við sig í mat og drykk og rétt að benda á að fátt toppar grillaða þorskhnakka.

Þorskhnakkar eru einmitt réttur vikunnar hjá stelpunum og strákunum í Fiskbúð Reykjaness, en á þeim bænum eru þorskhnakkarnir í kryddlegi með hvítlauk og umvafðir beikoni.

Fiskbúðin er opin á sumardaginn fyrsta frá klukkan 10 – 17 og þjónustan sem fyrr fyrsta flokks.

Hér fyrir neðan má finna sósuuppskrift sem smellpassar með grilluðum þorskhnökkum:

Piparostur 1.stk
Rjómi 500.ml
Svínateningur 1.stk
Einnig er hægt að bæta við hazzel back kartöflum og grilluðu grænmeti.