Nýjast á Local Suðurnes

Taka 140 milljóna lán til að fjármagna húsnæði og fráveitu

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga hefur samþykkir að taka tvö lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að upphæð allt að 140 milljónum króna.

Lánin eru tekin til að fjármagna kaup á stjórnsýsluhúsnæði, sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, segir í fundargerð og til þess að fjármagna framkvæmdir við fráveitu sveitarfélagsins.