Nýjast á Local Suðurnes

Sjóslys við Garðskaga – Maður féll fyrir borð á skipi

Leit stendur nú yfir að manni sem hafði fallið fyr­ir borð á skipi norðvest­ur af Garðskaga. Tvær þyrlur landhelgisgæslunnar taka þátt í leitinni og allur tiltækur floti björgunarsveita.

Land­helg­is­gæsl­an vildi ekki veita frek­ari upp­lýs­ing­ar þegar mbl.is leitaði til henn­ar en seg­ir til­kynn­ingu vænt­an­lega.  Þá segir í frétt Vísis að varðskipið Þór sé einnig vænt­an­legt.