Verkfærum að verðmæti um 700 þúsund krónur stolið í innbroti

Tvö þjófnaðarmál og innbrot voru tilkynnt til lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni. Í fyrradag var tilkynnt um mann sem hafði stungið varningi í verslun í bakpoka sinn og var kominn fram hjá afgreiðslukössunum þegar hann var stöðvaður. Í bakpokanum reyndust vera kjúklingur, lambalæri og sælgæti að andvirði á sjöunda þúsund kr.
Þá var tilkynnt um stuld á JBL hátalara úr verslun í Keflavík.
Loks var brotist inn í húsnæði á Ásbrú og þaðan stolið verkfærum að verðmæti um 700 þúsund krónur.
Lögregla rannsakar málin.