Opna þriðja pylsuvagninn á KEF
Bæjarins beztu hafa opnað þriðja staðinn á Keflavíkurflugvelli og þar með þann fjórða á Suðurnesjum.
Fyrirtækið opnaði fyrst útibú í verslun 10-11 í komusal flugvallarins og bætti svo við pylsuvagni á biðsvæði í suðurbyggingu þar sem farþegar á leið til Bretlands, Bandaríkjanna og annarra landa utan Schengen fara um. Þriðji pylsuvagninn er staðsettur við vegabréfaeftirlitið hjá farþegum til landa utan Schengensvæðis.
Auk þessara þriggja rekur fyrirtækið pylsusölu á Fitjum í Njarðvík.