Hópferðir Sævars aka skólabörnum í sund – Rúmlega átta milljóna króna ávinningur
![stræto sævar](https://i0.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2017/02/Untitled-design-2.png?resize=620%2C264)
Reykjanesbær tók tilboði Hópaferða Sævars í skólaakstur fyrir Akurskóla og Háaleitisskóla skólaárið 2017/2018. Tilboðið var rúmlega átta milljónum króna undir kostnaðaráætlun, sem hljóðaði upp á tæplega 15 milljónir. Um er að ræða akstur grunnskólabarna fram og til baka vegna íþrótta- og sundiðkunar tvo daga í viku fyrir hvorn skóla.
Verðfyrirspurn í skólaaksturinn var auglýst á Útboðsvef Reykjanesbæjar, auk þess sem verðkönnunin var einnig send til 13 rútufyrirtækja. Einungis eitt tilboð barst, frá Hópferðum Sævars og var það 55,3% undir kostnaðaráætlun Reykjanesbæjar. Því var tilboðinu tekið.
Reiknaður ávinningur af þessari verðfyrirspurn er kr. 8.294.566.-