Nýjast á Local Suðurnes

Hópferðir Sævars aka skólabörnum í sund – Rúmlega átta milljóna króna ávinningur

Reykjanesbær tók tilboði Hópaferða Sævars í skólaakstur fyrir Akurskóla og Háaleitisskóla skólaárið 2017/2018. Tilboðið var rúmlega átta milljónum króna undir kostnaðaráætlun, sem hljóðaði upp á tæplega 15 milljónir.  Um er að ræða akstur grunnskólabarna fram og til baka vegna íþrótta- og sundiðkunar tvo daga í viku fyrir hvorn skóla.

Verðfyrirspurn í skólaaksturinn var auglýst á Útboðsvef Reykjanesbæjar, auk þess sem verðkönnunin var einnig send til 13 rútufyrirtækja. Einungis eitt tilboð barst, frá Hópferðum Sævars og var það 55,3% undir kostnaðaráætlun Reykjanesbæjar. Því var tilboðinu tekið.

Reiknaður ávinningur af þessari verðfyrirspurn er kr. 8.294.566.-