Bæjarstjóri telur að nú sé tækifæri til að lækka álögur á íbúa
Reykjanesbær tilkynnti í gær að aðlögunaráætlun bæjarins hvað varðar fjárhagsmál sé fallin úr gildi og bæjarstjórn sé ekki lengur skylt að bera ákvarðanir undir Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga.
Í tilkynningunni kom fram að í framhaldinu yrði farið yfir framtíðaráætlanir bæjarfélagsins, en fjölmörg stór verkefni eru á teikniborðinu í uppbyggingu skóla- og íþróttamannvirkja, ýmissa fjárfestinga og framkvæmda. Morgunblaðið ræddi við Kjartan Má Kjartansson bæjarstjóra og birti umfjöllun um málið í blaði dagsins, en þar er haft eftir Kjartani að sveitarfélagið sé ekki lengur bundið að því að skila ákveðinni upphæð í formi fasteignaskatts.
„Nú geta bæjarfulltrúar farið að horfa á þætti sem áður voru negldir mjög fast niður. Við vorum til dæmis bundin af því að skila ákveðinni upphæð í formi fasteignaskatts. Nú ætti að vera tækifæri til að lækka álögur á íbúa ef árferðið versnar ekki mikið,“ segir Kjartan í Morgunblaðinu í dag.