Nýjast á Local Suðurnes

Stytta opnunartíma leikskóla vegna takmarkaðrar nýtingar

Fræðsluráð Reykjanesbæjar samþykkti á fundi sínum þann 11. janúar síðastliðinn að stytta opnunartíma leikskólans Garðasels frá og með haustinu 2019. Er þetta gert vegna takmarkaðrar nýtingar á dvalartímanum á milli klukkan 16.30 og 17.15 og vandkvæða sem fylgja því að manna leikskólann á þessum tíma.

Opnunartíminn verður styttur til klukkan 16.30, en í janúar 2020 verður óskað eftir stöðumati frá Garðaseli varðandi breytinguna þar sem leikskólinn mun kalla eftir viðbrögðum foreldra.

“Þó að líta megi á að ákveðin þjónustuskerðing eigi sér stað vill fræðsluráð horfa til þróunar í leikskólamálum á Íslandi undanfarin ár þar sem opnunartími er víðast hvar að færast til kl. 16.15 með tilliti til velferðar barna. Allir aðrir leikskólar í Reykjanesbæ loka kl. 16.15 og vill fræðsluráð hvetja vinnumarkaðinn til þess að koma til móts við foreldra ungra barna með sveigjanlegum vinnutíma.“ Segir í bókun ráðsins vegna málsins.