Dagur um málefni fjölskyldunnar í Fjölskyldusetrinu 12. mars

Haldið verður upp á dag um málefni fjölskyldunnar í Fjölskyldusetrinu, Skólavegi 1 laugardaginn 12. mars með dagskrá frá kl. 11:00 til 13:00. Boðið verður upp á kynningu, erindi og tónlistaratriði og viðurkenningar til fjölskylduvænna fyrirtækja og dagforeldra afhentar. Barnapössun verður á staðnum og boðið upp á veitingar.
Fjölskyldan er hornsteinn samfélagsins og því vert að gefa málefnum hennar gaum. Það hefur verið gert í Reykjanesbæ um árabil, m.a. með þessum degi. Dagskráin verður sem hér segir:
- Ávarp – Jasmina Crnac
- Kynning – Bókasafn Reykjanesbæjar
- Erindi – Bryndís Jóna Magnúsdóttir kennari og rithöfundur
- Viðurkenning til fjölskylduvænna fyrirtækja
- Viðurkenning til dagforeldra
- Tónlistaratriði
- Veitingar
Dagskráin er öllum opin og eru foreldrar hvattir til að taka börnin með, barnagæsla á staðnum.
Til viðbótar við þessa dagskrá má minna á að Fjörheimar/88 húsið er öllum opið kl. 13:00 – 17:00 og Ungmennagarðurinn frá kl. 10:00 – 22:00.