Nýjast á Local Suðurnes

Stækka hættusvæði við gosstöðvar

Samkvæmt drögum að nýju hættusvæði á gossvæðinu við Fagradalsfjall er gert ráð fyrir að það verði allt að 650 metrar í kringum öflugasta gíginn þegar vindhraði fer upp í fimmtán metra á sekúndu.

Gert er ráð fyrir að hættusvæðið sé nokkuð minna í rólegri vindátt, eða fjögur hundruð metrar. Frá þessu er greint á vef Vísis.