Nýjast á Local Suðurnes

Suðurnesjamenn fundu vel fyrir jarðskjálfta

Stór jarðskjálfti fannst á Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu nú á öðrum tímanum í dag.

Fjölmargir greina frá því á samfélagsmiðlum að um sé að ræða stærsta skjálfta sem fólk hafi fundið fyrir í langan tíma.

Fyrstu niðurstöður mælinga segja skjálftann hafa verið 5,7 að stærð.

Fréttin verður uppfærð þegar frekari upplýsingar liggja fyrir.