Nýjast á Local Suðurnes

Reykjaneshöfn fær greiðslufrest og veitir Thorsil frest í fimmta sinn

Stjórn Reykjaneshafnar og kröfuhafaráð hafa nú komist að samkomulagi um framlengingu á samþykktum greiðslufresti og kyrrstöðutímabili til og með 15. apríl 2016. Þetta kemur fram í tilkynninu hafnarinnar til Kauphallarinnar í morgun.

Þá hefur stjórn Reykjaneshafnar samþykkt að fresta fyrsta gjalddaga Thorsil ehf. á gatnagerðargjöldum vegna lóðar fyrirtækisins í Helguvík. Thorsil hafði fengið framlengdan frest til 15. mars en þarf nú ekki að greiða gjöldin fyrr en 15. maí næstkomandi. Þetta er í fimmta sinn sem gjaldaganum er frestað. Þess má geta að Thorsil sem á dögunum gerði samining við verkfræðistofuna Mannvit um framkvæmdir fyrirtækisins í Helguvík, sem metinn er á um 5 milljarða króna, fær 30% afslátt af gatnagerðargjöldum í Helguvík.