Nýjast á Local Suðurnes

Arnar tekur við Njarðvík

Knattspyrnudeild Njarðvíkur hefur náð samkomulagi við Arnar Hallson um hann taki við sem aðalþjálfari meistaraflokks. Arnar hefur á sínum ferli meðal annars þjálfað meistaraflokk karla hjá Aftureldingu og ÍR.

Njarðvík býður Arnar velkominn til starfa hjá félaginu og vonast til að samstarfið verði farsælt, segir í tilkynningu.

Þá hefur Hólmar Örn jafnframt ákveðið að segja skilið við Njarðvík en Hólmar tók við þjálfun liðsins ásamt Bjarna Jóhannssyni í nóvember 2020.