Dagforeldrar fengu viðurkenningu á Degi um málefni fjölskyldunnar
![fjoldkyldudagur reykjanesb verdl](https://i1.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2016/03/fjoldkyldudagur-reykjanesb-verdl.jpg?resize=620%2C264)
Dagforeldrunum Hrönn Ásmundsdóttur, Margréti Stefánsdóttur og Huldu Guðmundsdóttur var veitt viðurkenning á Degi um málefni fjölskyldunnar fyrir 10 ára starfsaldur en dagurinn var haldinn hátíðlegur sl. laugardag. Þá fékk Landsbankinn í Reykjanesbæ viðurkenningu sem Fjölskylduvænt fyrirtæki 2016 en hann var tilefndur af starfsmönnum. Viðurkenningin var að þessu sinni ljósmynd eftir OZZO.
![Kristín Helgadóttir leikskólafulltrúi, Hrönn Ásmundsdóttir og Margrét Stefánsdóttir dagforeldrara. Á myndina vantar Huldu Guðmundsdóttur.](https://i0.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2016/03/dagur-um-malefni-fjolskyldunnar2.jpg?resize=586%2C459)
Kristín Helgadóttir leikskólafulltrúi, Hrönn Ásmundsdóttir og Margrét Stefánsdóttir dagforeldrara. Á myndina vantar Huldu Guðmundsdóttur.
Dagur um málefni fjölskyldunnar var haldinn laugardaginn 12. mars í Fjölskyldusetrinu Skólavegi. Erindi um málefni fjölskyldunnar héldu þær Jasmina Crnac og Bryndís Jóna Magnúsdóttir. Þórey Ösp Gunnarsdóttir kynnti hvað stendur fjölskyldum til boða í Bókasafni Reykjanesbæjar. Dagskránni lauk á skemmtilegum söng frá Barnakór Tónlistaskóla Reykjanesbæjar undir stjórn Bylgju Dísar Gunnarsdóttur.
Alls sóttu daginn um 60 manns sem var hinn gleðilegasti í alla staði.