Nýjast á Local Suðurnes

Tæplega 130 ökumenn stöðvaðir við hefðbundið umferðareftirlit

Mynd: Lögreglan á Suðurnesjum

Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði 128 bifreiðir í gærdag við gömlu steypustöðina í Njarðvík. Um var að ræða hefðbundið eftirlit. Voru ökumenn beðnir um að blása í áfengismæli og réttindi þeirra athuguð. Er skemmst frá því að segja að allir voru með sitt á hreinu, að einum undanskildum sem var ekki í öryggisbelti.

Á síðustu dögum hafa tugir ökumanna verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæminu og fáeinir verið teknir úr umferð vegna gruns um vímuefnaakstur.