Kynningarfundur húsnæðissamvinnufélags – Nýjar íbúðir gætu verið klárar á 10 mánuðum
Kynningarfundur -/ stofnfundur húsnæðissamvinnufélags, non profit leigufélags, verður haldinn 10. ágúst nk. kl: 20.00. Í íþróttaakademíunni Sunnubraut 35. Reykjanesbæ. Í tilkynningu frá áhugahóp um húsnæðismál í Reykjanesbæ kemur fram að mögulegt sé að nýjar íbúðir, fullbúnar, gætu verið klárar á 10 mánuðum. Hólmsteinn Brekkan frá leigjendasamtökunum muni kynna slíkt fyrirkomulag og sýna mögulegar útfærslur á húsnæði.
Þá eru allir sem hafa áhuga á að auka við leiguíbúðir og komast í hús hvattir til að mæta á fundinn og skoða málið.
Ef þú eða þínir eruð húsnæðislaus eða að verða húsnæðislaus, kíkið á fundinn og takið þátt í að breyta leigumarkaðinum. Hvert ferðalag hefst á einu skrefi, segir í tilkynningunni.