Nýjast á Local Suðurnes

Börnum gefst kostur á að koma hugmyndum á framfæri

Börnum og ungmennum gefst kostur á  að koma hugmyndum sínum varðandi dagskrá á Ljósanótt 2023 á framfæri. 

Á Ljósanótt er meðal annars boðið upp á fjölbreytta skemmtidagskrá fyrir börn og ungmenni. Því hefur verið settur upp hugmyndakassi í Bókasafni Reykjanesbæjar þar sem börn og ungmenni geta sett hugmyndir sínar á blað og komið þeim til verkefnastjórnar Ljósanætur sem mun kappkosta að koma hugmyndum þeirra í framkvæmd. 

Ljósanótt verður haldin 31. ágúst – 3. september næst komandi. Hugmydakassinn verður á svæðinu til 8. ágúst næstkomandi.