Nýjast á Local Suðurnes

Þríburar úr Grindavík í landsliði – “Líklega í fyrsta sinn í sögu KKÍ sem það gerist”

Mynd: Grindavík.is

Átján leikmenn af Suðurnesjum voru valdir í U16 og U18 landslið Íslands í körfuknattleik, en þjálfarar liða drengja og stúlkna hafa valið sín 12 manna landslið fyrir verkefni sumarsins. Þjálfararnir boðuðu til sín æfingahópa um jól og áramót og hafa fylgst með leikmönnum í leikjum og á fjölliðamótum í vetur og hafa nú valið sín endanleg lið fyrir verkefnin framundan.

Liðin fjögur í U16 og U18 drengja og stúlkna fara öll á NM í Finnlandi í lok júní og síðan hvert og eitt í Evrópukeppni FIBA í sínum aldursflokki síðar í sumar.

Æfingar liðanna hefjast eftir að úrslitum yngri flokka á íslandsmótinu lýkur, sem fram fara um miðjan maí og munu þjálfarar boða sína leikmenn til þeirra þegar nær dregur.

Þríburar úr Grindavík voru valdar í U16 lið stúlkna og er það líklega í fyrsta sinn sem það gerist í sögu KKÍ, segir í tilkynningu, en um er að ræða þær Önnu Margréti Lucic Jónsdóttur, Natalíu Jenný Lucic Jónsdóttur og Theu Ólafíu Lucic Jónsdóttur.

Leikmenn U16 og U18 liðanna koma frá eftirtöldum félögum:
Breiðablik 2
Fjölnir 1
Grindavík 6
Hamar 2
Haukar 2
ÍR 3
Keflavík 8
KR 6
Njarðvík 4
Skallagrímur 1
Stjarnan 4
Valur 4
Vestri 2
Þór Akureyri 2
Þór Þorlákshöfn 1

Landsliðin eru skipuð eftirtöldum leikmönnum:

U16 stúlkur
Anna Margrét Lucic JónsdóttirGrindavík
Bríet ÓfeigsdóttirBreiðablik
Edda KarlsdóttirKeflavík
Eva María DavíðsdóttirKeflavík
Gígja Marín ÞorsteinsdóttirHamar
Helga Sóley HeiðarsdóttirHamar
Hjördís Lilja TraustadóttirKeflavík
Jenný Geirdal KjartansdóttirGrindavík
Natalía Jenný Lucic JónsdóttirGrindavík
Thea Ólafía Lucic JónsdóttirGrindavík
Þórunn FriðriksdóttirNjarðvík
Una Rós UnnarsdóttirGrindavík
Þjálfari: Árni Þór Hilmarsson
Aðstoðarþjálfari: Hallgrímur Brynjólfsson

 

U16 drengir
Ástþór Atli SvalasonValur
Benóný Svanur SigurðssonÍR
Friðrik Anton JónssonStjarnan
Gabriel Douane BoamaValur
Hilmir HallgrímssonVestri
Hugi HallgrímssonVestri
Magnús Helgi LúðvíkssonStjarnan
Marinó Þór PálmasonSkallagrímur
Ólafur Björn GunnlaugssonValur
Sveinn Búi BirgissonKR
Viktor Máni SteffensenFjölnir
Þorvaldur Orri ÁrnasonKR
Þjálfari: Ágúst S. Björgvinsson
Aðstoðarþjálfari: Snorri Örn Arnaldsson

 

U18 stúlkur
Alexandra Eva SverrisdóttirNjarðvík
Anna Ingunn SvansdóttirKeflavík
Ásta Júlía GrímsdóttirValur
Ástrós Lena ÆgisdóttirKR
Birna Valgerður BenónýsdóttirKeflavík
Elsa AlbertsdóttirKeflavík
Eydís Eva ÞórisdóttirKeflavík
Eygló Kristín ÓskarsdóttirKR
Hrund SkúladóttirNjarðvík
Kamilla Sól ViktorsdóttirKeflavík
Ólöf Rún ÓladóttirGrindavík
Sigrún Björg ÓlafsdóttirHaukar
Þjálfari: Ingi Þór Steinþórsson
Aðstoðarþjálfari: Sævaldur Bjarnason

 

U18 drengir
Dúi Þór JónssonStjarnan
Einar Gísli GíslasonÍR
Hilmar Smári HenningssonÞór Akureyri
Hilmar PéturssonHaukar
Ingimundur Orri JóhannssonStjarnan
Ingvar Hrafn ÞorsteinssonÍR
Júlíus Orri ÁgústssonÞór Akureyri
Sigurður Sölvi SigurðarsonBreiðablik
Sigvaldi EggertssonKR
Styrmir Snær ÞrastarsonÞór Þorlákshöfn
Veigar Áki HlynssonKR
Veigar Páll AlexanderssonNjarðvík
Þjálfari: Viðar Örn Hafsteinsson
Aðstooðarþjálfari: Jóhann Þór Ólafsson

U15 liðin verða tilkynnt 25. apríl og U20 æfingahópar karla og kvenna á næstu dögum.