Nýjast á Local Suðurnes

Grindvíkingar hittast á Ölveri fyrir leik

Mynd: Kkd. Grindavíkur

Grindavík mætir Stjörnunni í úrslitum Geysisbikars karla í körfuknattleik. Leikið verður í Laugardalshöllinni og hefst fjörið klukkan 13:30 á morgun, laugardag.

Stuðningsfólk Grindavíkur ætlar að stilla saman strengi sína fyrir leik á Ölveri sem er í göngufjarlægð frá Laugardalshöllinni. Boðið verður upp á andlitsmálningu fyrir börn og fullorðna. Grindvíkingar eru hvattir til að mæta í gulu og styðja strákana til sigurs!

Hægt er að versla miða í Palóma og hér (sé verslað í gegnum þennan tengil rennur andvirði miðanna til UMFG).