Nýjast á Local Suðurnes

Thorsil fær lengri frest til greiðslu gatnagerðargjalda

Reykjaneshöfn hefur veitt kísilveri Thorsil ehf. frest til 15. mars næstkomandi til að greiða gatnagerðargjöld vegna lóðar fyrirtækisins í Helguvík. Þetta kemur fram í tilkynningu hafnarinnar til Kauphallarinnar í dag.

Thorsil átti að greiða gatnagerðagjöldin þann 30. September síðastliðinn, en stjórn Reykjaneshafnar samþykkti að fresta greiðslunum til dagsins í dag en nú hefur fyrirtækið fengið annan frest.

Tilkynning Reykjaneshafnar til Kauphallarinnar í heild sinni:

Reykjaneshöfn og Thorsil ehf. hafa í dag hinn 15. desember 2015 gert með sér samkomulag vegna tafa á framgangi Lóðar- og hafnarsamnings frá 11. apríl 2014. Tildrög samkomulagsins eru þau að framgangur verkefnisins sem Lóðar- og hafnarsamningurinn tekur til hefur verið nokkru hægari en ráð var fyrir, m.a. hvað varðar afléttingu fyrirvara vegna útgáfu leyfa og afgreiðslu ESA. Vegna þessara tafa hafa aðilar breytt tímamörkum gagnkvæmra skuldbindinga.

Samkomulagið gerir meðal annars ráð fyrir að fyrsti gjalddagi gatnagerðargjalda á grundvelli Lóðar- og hafnarsamningsins færist aftur til 15. mars 2016, gegn því að búið verði að aflétta fyrirvörum fyrir þann tíma.