Nýjast á Local Suðurnes

Ísland – Kasakhstan á Grindavíkurvelli

U17 ára landslið karla í knattspyrnu hefur á morgun, þriðjudaginn 22. september, leik í undankeppni Evrópumóts landsliða, en fyrsti leikur liðsins er gegn Kasakhstan og fer fram á Grindavíkurvelli.

Leikurinn hefst klukkan 16:00. Liðið æfði á vellinum í dag við ágætar aðstæður en það er hætt við að liðin fái nokkuð hressilegan vind og jafnvel rigningu á morgun.